Half Life 2 (2004)
Útgáfudagur: 16. nóvember 2004
Útgefandi: VU Games
Verð: 4.490 kr. Hátíðarútgáfa
Framleiðandi: Valve Software
Tegund leiks: FPS
Niðurstaða
Þetta er í þriðja skiptið sem ég klára þennan geysivinsæla leik. Í fyrsta skiptið kláraði ég leikinn í miðlungs erfiðleika þannig að í annað skiptið kláraði ég hann í því erfiðasta. Núna hins vegar ákvað ég að spila leikinn aftur útaf tveim ástæðum, í fyrsta lagi útaf því að ég er að keyra Windows Vista x64 og í öðru lagi útaf því að ég er kominn með nýtt skjákort.
Valve menn tók sig til fyrir stuttu og endurbættu leikinn fyrir 64 bita stýrirkerfi. Ég tók strax eftir þessu þegar ég keyrði leikinn upp en þá kemur svona tab efst á skjánnum sem segir "64-bit mode enabled". Ég get ekki verið 100% viss hvort leikurinn hafi spilast eitthvað betur en ég fann einhvern mun þ.e. load-ið var mun hraðar og leikurinn í heildsinni var eitthvað meira smooth.
Nýja skjákortið, eVGA 8800GTS 640MB SC, gerði sitt og fann ég strax mun á graffíkinni í leiknum. Ég krankaði allt í botn í stillingunum og leikurinn hikstaði ekki neitt. Eina sem fór í taugarnar á mér var lýsingin. Sumir hlutir voru í fjarlægð með solid lit á sér en í staðinn ættu þeir að vera með daufa yfirferð á sér. Kannski stillti ég eitthvað vitlaust??.
Eins og ég sagði áðan þá er ég búinn að klára leikinn þrisvar og gefur það til kynna að ég er að fíla þennan leika alveg í botn.
Vopnin eru öll megaflott þó sérlega haglabyssan. Ekkert skemmtilegra en þegar þú ert í návígi við óvininn og plaffar hann með einu hagli. Gravity gun er líka yndislegur gripur og ég tala nú ekki um þegar maður er í enda leiksins þegar hún getur dregið til sín vondu kallana. Það var reyndar eitt vopn sem mig fannst vanta og það var sniperinn. Frekar leiðinlegt að sjá vondu kallana með Sniperinn með bláa lasernum skjóta mann í tætlur en get svo aldrei fengið að spreyta sig á honum sjálfur.
Spilunin á leiknum er djöfulli skemmtileg. Sama hvað ég spila hann oft eru alltaf einhverjar leiðir sem maður gleymir og þarf að hugsa soldið til að komast.
Óvinirnir eru margbreytilegir frá því að vera stökkbreyttar ófreskjur yfir í ofurstór vélmenni. Það er magnað þegar maður fær klikkuðu hröðu skrímslinn í andlitið á sér í fyrsta skiptið, mér bregður alltaf. Gervigreindin er mjög góð. Það eru aldrei einhverjir kallar sem byrja allt í einu að labba í burtu og gera einhvern skandal.
Mér fannst endirinn frekar súr eitthvað en kannski er þetta bara partur í því að halda þessari sögu áfram og koma með Half Life 3 sem fyrst. Það verður gaman að spila HL3 með Dx10 og Quad Extreme örgjörvann og kannski kominn með annað eins skjákort í SLI uppsetningu. Hver veit.
Í heildsinni einn besti leikur sem hefur verið búinn til og hlakka ég til að spila fleiri HL leiki í framtíðinni. Mæli með að allir skelli sér á þennan grip þó svo það væri ekki nema að downloada Valve og kaupa hann á netinu þ.e. fyrir þá sem nenna ekki útí búð. Og auðvitað fær hann 10 putta.
Þitt álit
Meðaleinkunn: 0 puttar