The Departed (2006)
Útgáfu ár: 2006
Leikstýrt: Martin Scorsese
Handrit: William Monahan
Flokkur: Hasarmynd, Spennumynd, Drama, Glæpamynd
Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio, Matt Damon, Jack Nicholson, Mark Wahlberg, Martin Sheen, Ray Winstone, Vera Farmiga, Anthony Anderson, Alec Baldwin, Gerard McSorley, David O'Hara, James Badge Dale, Kristen Dalton
Lengd myndar: 150 mín.
Kvikmyndaver: Warner Bros. Pictures
Niðurstaða
Óskarsverðlauna- myndin sjálf. Maður lætur þessa ekki framhjá sér fara, er það nokkuð ??
Billy, sonur fyrrum mafíuforingja, reynir að komast í lögguna en eftir að fá neitun vegna ætta sinna fær hann tækifæri til að gerast leynilögga þ.e. að komast inn hjá aðalmafíuforingjanum Costello. Það sem löggan veit ekki er að á sama tíma útskrifaðist lögga sem var tökusonur Costello. Þannig að báðir bógar eru með njósnara hjá hvor öðrum. Svo er bara spurninginn hver kemst upp um hvern fyrst.
Mögnuð mynd þar sem aragrúi af frábærum leikurum fara á kostum. Leaonardo DiCaprio er alveg geggjaður leikar. Mér hefur alltaf fundist hann vera svo mikil kelling og eitthvað en hann afsannar það í þessari mynd. Sama má segja um Mark Wahlberg sem leikur lögguna sem rífur mest kjaft. Jack Nicholson klikkar aldrei og því einn af mínum uppáhalds leikurum.
Það er spenna í gegnum alla myndina og slettur af drama koma annað slagið á milli. Myndin er vel leikin í alla staði og engin furða með alla þessa súper leikara. Endirinn var þægilega skrýtinn en fór þó mikið í taugarnar á henni Hildi minni. Ég mæli eindregið að allir sjái þessa stórmögnuðu mynd.
Ég ætla að gefa myndinni 9 putta.
Þitt álit
Meðaleinkunn: 0 puttar
casinodeposit
soaringeagleca