Monster House (2006)
Útgáfu ár: 2006
Leikstýrt: Gil Kenan
Handrit: Dan Harmon, Gil Kenan, Pamela Pettler, Rob Schrab
Flokkur: Gamanmynd, Hrollvekja, Teiknimynd, Drama
Aðalhlutverk: Mitchel Musso, Sam Lerner, Spencer Locke, Steve Buscemi, Nick Cannon, Matthew Fahey, Maggie Gyllenhaal, Jon Heder, Kevin James, Jason Lee, Ryan Newman, Catherine O'Hara, Kathleen Turner, Fred Willard
Lengd myndar: 96 mín.
Kvikmyndaver: Columbia Pictures
Niðurstaða
Ég var búinn að heyra að þessi mynd væri mjög skemmtileg og Hildur hafði stolist til að horfa á hana ein einhvern tíman þannig að ég ákvað að horfa á hana í einsemdinni eitt kvöldið.
Eina helgina þegar DJ ( Mitchel Musso ) er einn heima tekur hann eftir undarlegum látum í húsinu á móti sér. Þegar hann og vinur hans fara að athuga málið betur kemur í ljós að húsið er lifandi ásamt því að sá sem býr í húsinu er ferlega vondur við alla krakka. Einn daginn daginn fær húseigandinn hjartaáfall og húsið verður frekar fúllt. Í slag með strákunum slæst ung stúlka og saman reyna þau að komast til botns í því af hverju húsið er lifandi.
Hér er á ferðinni skemmtileg mynd, bæði fyrir krakka og fullorðna. Hún er bæði fyndin og spúkí sem er alltaf gott. Myndin er vel teiknuð og hljóðsetningin góð.
Ég ætla að gefa myndinni 7 putta.
Þitt álit
Meðaleinkunn: 0 puttar