Djamm

2000

Þetta árið uppgötvaði ég ótrúlegu hæfileika sem ég bjó yfir. Hæfileikarnir komu í ljós þegar ég er á leiðinni á djammið og ákveð að taka með mér myndavél. Myndavélin innihélt filmu og filman var full áður en kvöldið tók enda. Næsta dag fór ég með filmuna í framköllun og þegar ég fæ myndirnar framkallaðar til baka hugsa ég, þvílík myndasmíð. Ég fékk svo skanna í jólagjöf og byrjaði um leið að skanna inn myndirnar og setja þær á vefinn. Myndavélin fékk svo að koma með á nokkur djammkvöld og er hægt að sjá þau hér fyrir innan. 

2001

Í maí festi ég kaup á digital myndavél sem kostaði hvorki meira né minna en 250 þús. Fyrst og fremst var þetta upptökuvél og held ég að Sony menn myndu gefa mér nýja vél ef þeir vissu hvernig ég átti eftir að nota hana og hversu vel hún stóð sig í því hlutverki. Þetta var engin "Point and shoot" myndavél heldur mini-dv upptökuvél í hæsta gæðaflokki sem bjó yfir þvílíkum kyrrmyndahæfileikum. Það var lítið flash sem poppaði upp fyrir ofan linsuna og minnir mig að upplausnin hafi verið 1.2 megapixlar. Fyrst að ég var komin með svona fína myndavél ákvað ég að setja upp geiri.net og byrja að taka myndir af fullu fólki að skemmta sér og setja á netið. Það gekk svona helvíti vel og áður en ég vissi var ég byrjaður að vinna hjá Núlleinum við að taka myndir.  

2002

Þetta árið fór svo myndavélin að segja til sín. Þið getið bara ýmindað ykkur allt sem hún hefur upplifað. Farið á milljón fyllerí, dottið í gólfið oftar en tvisvar, fá bjór yfir sig og margt margt fleira. Ég skemmti mér samt alltaf mjög vel með henni þótt hún hafi verið farin að slökkva á sér inná milli og vill ég þakka öllum þeim sem gáfu okkur bjór og hleyptu okkur strax inn, fram fyrir allar raðirnar. Þegar leið á árið fóru myndakvöldunum að fækka þar sem að Núlleinn spörkuðu mér óbeint á blaut malbikið. Ég hélt samt áfram að taka myndir og setja á síðunna því að það var bara svo gaman.

2003 

Lítið var djammað þetta árið en eitthvað samt. Maður var líka farinn að fækka djammferðunum þar sem að myndavélin fékk að koma með. Eins og ég sagði hér á fyrri árum þá var hún orðin frekar slöpp greyið og hékk í gangi í nokkrar mínútur í senn.

2004

Þetta árið var maður gjörsamlega hættur að taka myndavélina með á djammið og er þetta líklegast árið sem Sony myndavélin mín tók sína seinustu mynd.

Könnun

Gott verður?
Þokkalega
Ó Já
Tjahh.. sæmilegt
Nei..
Half Life 2 Einkunn
Þetta er í þriðja skiptið sem ég klára þennan geysivinsæla leik. Í fyrsta skiptið kláraði ég le...
Meira »

Alpha Dog Einkunn
Mig minnir að ástæða fyrir því að horfa á þessa mynd væri að Hildi langaði að sjá Justin Timber...
Meira »


Byggir á LISA .NET  - Vefumsjónarkerfi frá INNN


Leit